Lýsing
Hamfarir eins og eldgos hafa riðið yfir jörðina og mannkynið frá upphafi vega. Eldgos umbreyta umhverfi og mannlífi, skapa og eyða á víxl svo ekkert verður samt. Í þessari bók fjallar Dr. Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur á Fornleifafræðistofunni um ýmsar hamfarir, einkum eldgos, sem mannkynið hefur mátt þola í aldanna rás og um áhrif þeirra á menningu og mannlíf. Í brennidepli er miðaldabýlið Bær í Öræfum sem fór í eyði á augnabliki árið 1362 þegar Öræfajökull gaus sínu stóra gosi. Gosið var af sama meiði og gosið í Vesúvíusi árið 79 e.Kr. en það eyddi Pompeii og fleiri borgum á Ítalíu. Í Bæ stóðu fornleifarannsóknir yfir árin 2002–2009 og eru niðurstöður þeirra kynntar í bókinni.
Í bókinni er fjöldi ljósmynda, teikninga, korta og uppdrátta sem tengjast rannsóknunum.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.