Lýsing
Sagan um Þórurnar tvær hefur löngum verið vinsæl til upprifjunar í Þingvallaferðum. Systurnar hétu báðar Þóra, í höfuðið á móðurömmu sinni, Þóru Magnúsdóttur Noregskonungs. En þrátt fyrir slíka ættgöfgi var ævi þeirra áfallasöm í gleði með þungum þrautum og upphefð þeirra nánustu varð þeim nístandi sár. Þessa indælu en margslungnu sögu segir Björn Th. Björnsson í þessari bók og bregst hvorki tær stíll hans né myndvísi á sviðsetningu atburða.
Björn Th. Björnsson lauk við bókina skömmu fyrir andlát sitt í ágúst sl.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.