Ferðin að miðju jarðar

kr. 5990

Ferðin að miðju jarðar fjallar um skrautlegan sérvitring, prófessor Ottó Lidenbrock, og fróðleiksfúsan frænda hans, Axel. Dag nokkurn komast þeir af tilviljun yfir eldgamalt skjal sem inniheldur vísbendingu um að íslenskur lærdómsmaður, Arne Saknussemm að nafni, hafi sennilega farið niður að miðju jarðar fyrir margt löngu. Prófessorinn hyggst nú sanna að hægt sé að komast þangað og skipar Axel að koma með sér í rannsóknarleiðangurinn.

Leiðin liggur frá heimaborg þeirra, Hamborg í Þýskalandi, til Danmerkur og Íslands þar sem hinn eiginlegi rannsóknarleiðangur hefst undir styrkri leiðsögn Íslendingsins Hans. Þremenningarnir síga ofan í gíginn á kulnuðu eldfjalli, Snæfellsjökli, og leggja þar með upp í hrikalegri svaðilför en þá hafði nokkurn tímað órað fyrir …

Ferðin að miðju jarðar var fyrst gefin út í París árið 1864. Þetta er ein þekktasta saga Jules Verne, hún hefur verið þýdd á ótal tungumál og notuð sem efniviður í fjölmargar kvikmyndir, sjónvarpsþætti, leikrit, tónverk og tölvuleiki.

Bókina prýða myndir úr upprunalegu útgáfu verksins eftir Édouard Riou.

283 bls. | 153 x 230 | 2013 | ISBN 978-9935-458-10-0

Lýsing

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferðin að miðju jarðar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *