Glapræði. Skemmtisaga

kr. 990

Eiríkur Bergmann Einarsson (Höfundur)

Þórður Kjartansson er traustur embættismaður í þjónustu ríkisins. Á sólríkum föstudegi rennur upp fyrir honum að líf hans er blekking. Hann kastar öllu frá sér og heldur á vit ævintýranna. Í bríaríi greinir hann frá viðkvæmu hneykslismáli sem skekur efstu lög þjóðfélagsins og allt fer í bál og brand. Skyndilega beinist miskunnarlaust kastljós þjóðmálanna að Þórði sem þarf að eiga við spillta stjórnmálamenn, barkonur, æsiblaðamenn og strætisróna um leið og hann þarf að stokka upp eigið líf og fóta sig í nýju umhverfi.

Í þessari gráglettnu skemmtisögu er dregin upp skopleg mynd af baksviði íslenskra stjórnmála og tilvistarkreppu nútímamannsins sem í ráðleysi ráfar um í borgarfrumsóginum án þess að vita hvers hann leitar.

Eiríkur Bergmann Einarsson er stjórnmálafræðingur og háskólakennari. Glapræði er fyrsta skáldsaga hans en hann hefur áður gefið út bækur og birt ritgerðir á fræðasviði sínu, Evrópufræðum. Þá hefur Eiríkur um árabil ritað pistla um ýmis þjóðfélagsmál og getið sér gott orð fyrir.

166 bls. | 210 x 135 mm | 2005 | ISBN 9979-772-49-2

Lýsing

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Glapræði. Skemmtisaga”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *