Frjáls eins og fuglinn. Myndir og minningar

kr. 6999

Mats Wibe Lund

Í þessari bók rekur Mats Wibe Lund ljósmyndari minningar sínar en jafnframt er bókin yfirlit um ljósmyndaferil hans sem spannar meira en 60 ár.

Mats Wibe Lund fæddist í Ósló i Noregi 1937. Hann kom fyrst til Íslands sumarið 1954 og vann þá við fornleifauppgröftinn í Skálholti. Áhuga hans á Íslandi má rekja til þess tíma er faðir hans rak fyrirtæki sem var staðsett í sama húsi og sendiráð Íslands í Ósló.

Ljósmyndamenntun sína fékk Mats í norska flughernum, í Frakklandi og í Þýskalandi. Hann fluttist alkominn til Íslands árið 1966 ásamt eiginkonu sinni, Arndísi Ellertsdóttur, en hafði þá margsinnis dvalist hér um lengri eða skemmri tíma.

Framan af starfaði hann jöfnum höndum sem blaðamaður og ljósmyndari. Hann hefur skrifað á annað þúsund blaðagreinar um margvísleg íslensk málefni, fyrir blöð og tímarit í Evrópu og Bandaríkjunum.

Um tíma rak Mats ljósmyndavöruverslun og portrettstúdíó í Reykjavík, en hinn seinni ár hefur hann helgað sig átthagamyndatökum úr lofti. Hann á nú mikið safn mynda, jafnt af þéttbýlisstöðum sem og af flestum sveitabýlum og eyðibýlum á Íslandi. Úr tölvuvæddu ljósmyndasafni sínu dreifir hann landkynningar- og skreytingamyndum um allan heim.

Mats hefur oft sýnt myndir sínar á einkasýningum og samsýningum bæði hér heima og erlendis.

176 bls. | 250 x 210 | 2018 | ISBN 978-9935-458-81-0

Lýsing

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Frjáls eins og fuglinn. Myndir og minningar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *