Fólkið í blokkinni
Vigga er 11 ára og býr ásamt fjölskyldu sinni á níundu hæð í blokk í Hólunum. Vigga hefur frá frá ýmsu að segja. enda er lífið í blokkinni hreint ótrúlega fjölbreytilegt. Þar býr margt skondið og skemmtilegt fólk, til aðmynda Robbi húsvörður sem trompast ef hann sér hund, Malla norn sem getur galdrað graftarbólur á nefið á leiðinlegum strákum, Loftur Loftsson sem á hundinn Loft, tvíburarnir Ari og Bjarni sem enginn þekkir í sundur, þunglyndi leikarinn og síðast en ekki síst hann Óli, bróðir Viggu, sem á talandi páfagauk. Sögurnar af fólkinu í blokkinni eru sprenghlægilegar en þó um leið svo raunsannar að allir sem einhverntíma hafa búið í blokk hrópa: Einmitt svona er þetta!
Flokkur: Íslenskar barna- og unglingabækur
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.