Balzac

kr. 5999

Stefan Zweig (Höfundur)

Þessi ævisaga franska rithöfundarins Honoré de Balzacs er síðasta bók austurríska rithöfundarins Stefans Zweig. Þó að honum hafi ekki tekist að ganga endanlega frá henni fyrir andlát sitt er hún af mörgum talin besta ævisaga hans.

Balzac er einn af merkustu rithöfundum 19. aldarinnar. Hann var með eindæmum stórvirkur og ritaði á milli 80 og 90 bækur á 20 ára rithöfundarferli. Hann er einn af frumkvöðlum raunsæisstefnu í bókmenntum og hafði mikil áhrif á aðra höfunda. Á það ekki síst við um Charles Dickens, Henry James, Gustave Flaubert og Fjodor Dostojevskí.

Balzac er lítt kunnur hér á landi. Einungis örfáar smásögur hafa verið þýddar af hans mikla verki. Varla er hægt að finna betri mann en Stefan Zweig til að kynna Balzac en furðulegur og stórbrotinn æviferill hans lætur varla nokkurn ósnortinn.

450 bls. | 135 x 210 | 2016 | ISBN 978-9935-458-59-9

Lýsing

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Balzac”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *