Ævintýri frá miðöldum

kr. 12999

Heildarútgáfa ævintýra frá miðöldum markar tímamót því að slíkt verk hefur ekki áður komið út. Í fyrsta sinn geta nútímalesendur kynnst þessari vinsælu bókmenntagrein miðalda í aðgengilegri lestrarútgáfu með nútímastafsetningu. Ævintýrin, sem eins má kalla dæmisögur (exempla), voru samin í Evrópu á latínu á 12., 13. og 14. öld og höfðu um langan aldur mikil og varanleg áhrif á bókmenntir Evrópuþjóða, þar á meðal á Íslendingasögur og fleiri bókmenntagreinar. Sum þessara ævintýra öðluðust síðan framhaldslíf í þjóðsögum síðari alda.

Í safninu eru 146 ævintýri sem þýdd voru á miðöldum úr latínu og miðensku á 13., 14. og 15. öld. Með þeim opnaðist Íslendingum sagnasjóður sem iðulega má rekja langt aftur í aldir til klassískrar fornaldar Grikkja og Rómverja, Persa, Indverja og Araba.

Útgáfan er með fræðilegum inngangi og fjallað er um uppruna ævintýranna í athugasemdum á eftir hverju þeirra. Neðanmáls eru m.a. biblíutilvísanir, orðskýringar, stuttar menningarsögulegar skýringar og lesbrigði handrita.

Bragi Halldórsson sá um útgáfuna og Hrefna Bragadóttir myndskreytti.

48 bls. | 2 bindi | 153 x 230 | 2016 | ISBN 978-9935-458-58-2

Lýsing

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ævintýri frá miðöldum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *