Fornbátar á Íslandi II

kr. 9999

Helgi M. Sigurðsson

Bátar hafa ætíð verið Íslendingum ómissandi. Landið er á mörkum hins byggilega heims og því fremur rýrt til ræktunar og búfjárhalds. Hins vegar er sjórinn umhverfis það ríkur af lífi og hefur fiskur, selur, hákarl og annað sjávarfang verið um aldir afar mikilvæg fæða landsmanna. Og til að nálgast gjafir hafsins var nauðsynlegt að hafa báta af ýmsum stærðum og gerðum. Einnig voru bátar mikið nýttir til flutninga og ferðalaga.

Bók þessi er sjálfstætt framhald bókarinnar Fornbátar á Íslandi sem út kom árið 2023 og fjallaði um báta í opinberri eigu. Hér er athyglinni einkum beint að fornbátum í eigu einstaklinga. Birtir eru 50 stuttir kaflar um jafnmarga báta sem smíðaðir voru á árunum 1870–1950 og nokkra að auki frá sjötta áratugnum. Allt eru þessir bátar forvitnilegir, bæði smíði þeirra og notkun. Einnig og ekki síður er saga þeirra sem að þeim komu áhugaverð, bátasmiðanna, sjómannanna sem fóru á þeim í róðra og aðrar sjóferðir, oft við óblíðar aðstæður, og samfélagið sem þeir tilheyrðu.

Tilgangurinn með þessari bók er auk almennrar fræðslu að vekja athygli á að þessir bátar eru veigamikill menningararfur á sama hátt og gömul hús og gripir og að stuðla beri að aukinni og bættri bátavernd í landinu.

171 bls. | 220×280 | 2026 | ISBN 978-9935-520-77-7

Description

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Fornbátar á Íslandi II”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *