Description
Allir verða stundum reiðir. En ef þú ert reiður mjög oft … eða ert reiður lengi … eða lendir í vandræðum vegna reiðinnar … eða ef þér líkar ekki hvernig þér líður eða hvað þú gerir þegar þú ert reiður … Þá geturðu tekið ARGIÐ úr reiðinni.
Það er ekkert flott að vera skapbráður. Þú hefur aflið til að yfirvinna reiðina. Þessi bók segir þér hvernig. Í henni finnurðu:
• fimm skref til að temja reiðina
• sex skref til að leysa reiðivandamálið
• leiðir til að finna „reiðihnappana“ þína og „viðvörunarmerki“ líkamans
• aðferðir til að róa þig
• ráð til að nota „reiðiskynjarann þinn“
• það sem þú getur gert þegar fullorðnir verða reiðir
• og margt fleira
Svo þú þarft ekki að missa móðinn. Notaðu hann frekar. Lærðu að stjórna reiðinni – og þér mun líða frrrábærlega.
Reviews
There are no reviews yet.