Description
Sigurður Jón Ólafsson er fæddur 1947 og er þetta önnur ljóðabók hans. Sú fyrsta hét Slitinn þráður úr köngulóarvef og kom út 2014. Sigurður starfaði lengst af í Borgarbókasafni Reykjavíkur, en er nú kominn á eftirlaun. Sigurður er með BA próf í bókasafnsfræði og íslensku.
Ljóðin í bókinni skiptast í fimm kafla og eru yrkisefni af margvíslegum toga. Einn kafli er helgaður nánasta umhverfi höfundar, 101 í Reykjavík, annar höfðar sérstaklega til fólks á öllum aldri með frjótt ímyndunarafl, sá þriðji endurminningar frá ólíkum æviskeiðum, fjórði er helgaður minningu Ástu Lilju, eiginkonu höfundar, og sá síðasti og viðamesti – Trú – fjallar um tilvist manneskjunnar og tengsl hennar við náttúruna.
Reviews
There are no reviews yet.