Faðir Goriot

kr. 5999

Honoré de Balzac er óefað einhver allra merkasti rithöfundur nítjándu aldarinnar. Ýmsir af þekktustu höfundum aldarinnar, svo sem Flaubert, Dostojevskí, Dickens og fleiri litu á hann sem læriföður sinn. Ritverk Balzacs bera heildarheitið La Comédie humaine og hafa að geyma hvorki meira né minna en um níutíu skáldsögur og smásögur. Skáldsagan Faðir Goriot sem kom fyrst á prenti árið 1835 skipar þar veglegan sess. Hún fjallar um mannlegar tilfinningar, dyggðir sem verða lestir þegar þær ganga út í öfgar, ást, ósérplægni, ágirnd, hégómagirnd, hatur og spillingu, auð og fátækt. Balzac fjallar um mannlífið og samfélagið af innsæi og andlegri skerpu sem fáir hafa leikið eftir.

Segja má að Balzac leggi allar höfuðlínurnar að ritverki
sínu í Föður Goriot og því sé eðlilegast að hefja lesturinn
á La Comédie humaine á þeirri bók. Hún er líka fyrsta
skáldsaga Balzacs sem þýdd er á íslensku, svo undarlegt
sem það má virðast.

271 bls. | 210 x 135 | 2017 | ISBN 978-9935-458-67-4

Lýsing

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Faðir Goriot”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *