Erasmus. Upphefð og andstreymi

kr. 5999

 

Austurríski rithöfundurinn Stefan Zweig er Íslendingum löngu kunnur. Þessi litla bók sem segir frá lífi og störfum Erasmusar frá Rotterdam (1466–1536) kom fyrst á prent árið 1934. Af einhverjum ástæðum hefur hún þó ekki verið þýdd á okkar tungu fyrr en nú. Síst á hún þó skilið að hafa verið höfð útundan því Erasmus var einhver merkasti maður sinnar samtíðar, húmanisti, friðarsinni og líklega fyrsti Evrópusinninn sem um getur. Öll Evrópa var föðurland hans. Frásögn af ævi hans úreldist ekki. Hollt er að minnast baráttu hans, sigra og ósigra. Ekki er undarlegt þó að gyðingnum Stefan Zweig yrði tíðhugsað til Erasmusar og hafi viljað koma boðskap hans á framfæri þegar nasisminn var að ryðja sér til rúms, minnihlutahópar voru ofsóttir og sundrun Evrópu blasti við.

 

Nokkrar umsagnir:

 

Bestu kaflar verksins eru beinlínis snilldarlegir … Það er mikill fengur að þessari bók þar sem áherslan er á mannúð, umburðarlyndi og kærleika, nokkuð sem heimurinn þarf sannarlega á að halda.
Kolbrún Bergþórsdóttir, DV 20. nóv.

 

171 bls. | 135×210 | 2015 | ISBN 978-9935-458-32-2

Lýsing

Austurríski rithöfundurinn Stefan Zweig er Íslendingum löngu kunnur. Þessi litla bók sem segir frá lífi og störfum Erasmusar frá Rotterdam (1466–1536) kom fyrst á prent árið 1934. Af einhverjum ástæðum hefur hún þó ekki verið þýdd á okkar tungu fyrr en nú. Síst á hún þó skilið að hafa verið höfð útundan því Erasmus var einhver merkasti maður sinnar samtíðar, húmanisti, friðarsinni og líklega fyrsti Evrópusinninn sem um getur. Öll Evrópa var föðurland hans. Frásögn af ævi hans úreldist ekki. Hollt er að minnast baráttu hans, sigra og ósigra. Ekki er undarlegt þó að gyðingnum Stefan Zweig yrði tíðhugsað til Erasmusar og hafi viljað koma boðskap hans á framfæri þegar nasisminn var að ryðja sér til rúms, minnihlutahópar voru ofsóttir og sundrun Evrópu blasti við.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Erasmus. Upphefð og andstreymi”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *