Description
Jón Óskar fæddist á Akranesi 18. júlí 1921 og lést í Reykjavík 20. október 1998. Jón var einkum þekktur sem ljóðskáld og var einn úr hópi hinna svokölluðu atómskálda sem komu fram með nýjungar í íslenskri ljóðagerð um miðja 20. öld.
Fyrsta bókin sem út kom eftir Jón var hins vegar smásagnasafnið Mitt andlit og þitt árið 1952.
Jón Óskar skrifaði fleira í óbundnu máli en smásögur; skáldsögu, sagnfræðilegar bækur og endurminningar í 6 bindum um líf íslenskra skálda og listamanna um miðbik 20. aldar, en þær þykja nú mikilvægar heimildir um bókmenntalíf þessa tíma. Smásagnasafn Jóns, Sögur 1940-1964, kom út árið 1973 og birtust þar allar sögur hans fram að þeim tíma. Smásögur hans vöktu athygli og gagnrýnandinn Ólafur Jónsson sagði um bókina: „Það sem nýtt var í sögum Jóns Óskars […] allt frá fyrstu sögum hans, það er stílsháttur þeirra, ofur-einfaldur og líkt og kæruleysislegur, en samt sem áður svo skýr og nákvæmur á smámuni, stílsháttur sem er jafn auðnuminn af sögunum og erfitt er að lýsa honum í fljótu bragði, öðrum orðum.“
Í þessu smásagnasafni, Ég hef gleymt einhverju niðri, birtast allar smásögur Jóns Óskars sem teljast fullfrágengnar, bæði þær sem birtust í Sögum 1940-1964 og einnig fimm sögur sem hann samdi eftir það og ekki hafa komið áður út í bók.
Pétur Gunnarsson skrifar formála að bókinni.
Reviews
There are no reviews yet.