Byltingin svikin

kr. 3999

Byltingin svikin er eitt af merkustu verkum Trotskys. Í þessari bók, sem hann ritaði árið 1936, gerir hann grein fyrir því hvernig Sovétríkin höfðu þróast á þeim 19 árum sem liðin voru frá októberbyltingunni.

Trotsky var ásamt Lenin annar af tveimur helstu foringjum rússnesku byltingarinnar í október 1917. Trotsky var mikilvirkur rithöfundur og vann fyrir sér með skrifum frá unga aldri. Í bókinni rekur Trotsky hvernig gagnbyltingin sigraði. Þessi greining hans á Sovétríkjunum hefur staðist tímans tönn betur en margt annað. Gagnbylting Stalíns hafði náð undirtökum á þessum tíma. Henni fylgdi mikið blóðbað og átti það eftir að færast mjög í aukana eftir 1936. Hann hafði ótrúlega nákvæmar upplýsingar um ástandið í Sovétríkjunum. Hann gerir í þessari bók grein fyrir helstu þróunarmöguleikum þessa stóra ríkis. Trotsky spáði endalokum Sovétríkjanna. Í ljós kom á árunum 1990
og eftir það hve ótrúlega sannspár hann var.

Trotsky skilgreindi Sovétríkin sem umskiptasamfélag en þar væri hvorki sósíalismi né kapítalismi. Hann lýsir í bókinni þeim áhrifum sem pólitísk gagnbylting hafði á samfélagið. Trotsky hvatti til pólitískrar byltingar í Sovétríkjunum sem væri eini raunhæfi valkosturinn því ella yrði kapítalískt samfélag endurreist í landinu.

280 bls. | 135 x 210 | 2020 | ISBN 978-9935-458-97-1

Flokkur:

Lýsing

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Byltingin svikin”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *