Augu Líru

kr. 5690

 

Nwankwo, yfirmaður efnahagsbrotadeildar lögreglunnar í Lagos í Nígeríu er að mati þarlendra ráðamanna farinn að hnýsast óþægilega mikið í þeirra mál. Til að bjarga lífi hans afræður norska leyniþjónustan að forða honum og fjölskyldu til Lundúna. Í Suður-Frakklandi tekur dómritarinn Felix þátt í leit um borð í lystisnekkju færeyska bankastjórans Stephensens eftir að lík eiginkonu hans hefur fundist í höfninni í Nice. Líra, blaðakona frá Sankti-Pétursborg heldur til Lundúna til að rannsaka ærið vafasöm viðskipti rússnesks athafnamanns og góðvinar þarlendra valdhafa, Sergeis Lússkís.

 

Þegar leiðir þeirra Líru, Felix og Nwankwos liggja fyrir tilviljun saman í Lundúnum komast þau á snoðir um að fleiri morð hafa verið framin og að þau tengjast á dularfullan hátt …

 

Augu Líru er hágæða spennusaga skrifuð af mannlegu innsæi og yfirgripsmikilli þekkingu tveggja kvenna sem hafa kynnst skuggahliðum alþjóðlega fjármálaheimsins betur en flestir aðrir, en líka hetjusaga „litla mannsins“, fólks sem neitar að beygja sig undir ofurvald fjármagns og stjórnmála í baráttunni fyrir betri og réttlátari heimi.

 

Augu Líru er miklu meira en góð afþreying. Bókin er líka áleitið umhugsunarefni fyrir þá sem héldu að fjármálakreppan hefði bara verið lítið hliðarspor í sögu heimskapítalismans.“
Christope Alix, Libération

 

295 bls. | 135 x 210 | 2012 | ISBN 978-9979-655-91-6

Lýsing

Augu Líru er hágæða spennusaga skrifuð af mannlegu innsæi og yfirgripsmikilli þekkingu tveggja kvenna sem hafa kynnst skuggahliðum alþjóðlega fjármálaheimsins betur en flestir aðrir, en líka hetjusaga „litla mannsins“, fólks sem neitar að beygja sig undir ofurvald fjármagns og stjórnmála í baráttunni fyrir betri og réttlátari heimi.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Augu Líru”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *