Description
Í gegnum fræðistörf sín, bækur, greinar og fjölmörg viðtöl hefur Trausti miðlað dýrmætum sjónarmiðum og vakið máls á málefnum sem snerta okkur öll. Hann hefur dregið upp stóru myndina – með skýrri hugsun, tilfinningu fyrir samhengi …
Logi Einarsson, menningarráðherra
Bókin List og Hönnun stendur ekki bara sem hápunktur um ævi Trausta Valssonar í listrænum, byggingarlistar- og akademískum störfum heldur sem heimspekileg yfirlýsing um hlutverk fagurfræði, mannúðar og tilfinninga.
Massimo Santanicchia, deildarforseti og prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands
Arkitektinn og hugsuðurinn Trausti Valsson lýsir í þessu skemmtilega og fræðandi riti tilurð sinni og viðhorfum sínum, bæði á sviði mynd- og byggingarlistar …
Þóra Bergný Guðmundsdóttir, arkitekt og höfundur rita um arkitektúrsögu
Hið ornamentalska kemur bæði fram í skúlptúrum hans, og eins þegar hann málar geometrísk ornament á stóra leir-diska. Þetta eru mjög glæsilegir diskar.
Helga Björnsson, tískuteiknari og hönnuður
Gervigreindin vinnur bara með efni sem er fyrir hendi – Hún sér ekki framtíðina. Trausti sýnir það, sem skapandi fólk veit, að það er höndin, hugboðið, innsæið og tilfinningar sem skapa framtíðina … Þessi bók er full af dæmum um þetta.
Goddur, fyrrv. prófessor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands
Reviews
There are no reviews yet.