Description
Garðblómabókin kemur nú út í aukinni og endurskoðaðri útgáfu en fyrsta útgáfa bókarinnar, sem kom út árið 1995, er löngu uppseld. Talsverðar breytingar hafa orðið á garðblómaflóru á Íslandi síðastliðinn áratug. Í bókinni er þeim breytingum komið til skila. Umfjöllun um fjölmargar nýjar tegundir hefur verið bætt inn í bókina, en í henni er fjallað um öll algengustu garðblóm í görðum landsmanna. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka þegar hún kom fyrst út.
Í bókinni eru inngangskaflar þar sem m.a. er fjallað um nafngiftir plantna, ræktun, fjölgun og umhirðu garðblóma, jarðveg, áburð, safnhauga, skjól í görðum, sólreiti, blómabeð, steinhæðir og steinbeð, plöntuval í blómabeð, sumarblóm, lauk- og
hnýðisjurtir, grasflatir og blómaengi er fjallað um 63 ættir burkna, tvíkímblöðunga og einkímblöðunga er fjallað um yfir 400 ættkvíslir og einkennum þeirra lýst er fjallað um nokkuð á annað þúsund tegundir garðblóma og auk þess fjölmörg afbrigði þeirra, tilbrigði og sortir eru tæplega 800 litmyndir af garðblómum í íslenskum görðum eru íslenskar og latneskar skrár yfir öll plöntunöfn eru m.a. skrár yfir steinhæðaplöntur, skuggþolnar plöntur, hávaxnar plöntur, blaðfagrar plöntur, sígrænar plöntur, vor- og síðblómstrandi plöntur, þekju- og klifurplöntur og skrár yfir plöntur eftir blómalitum, t.d. plöntur með hvítum blómum, rauðum eða bláum er umfjöllun um langflestar tegundir, afbrigði og sortir garðblóma sem reynd hafa verið í íslenskum görðum og gefið hafa góða raun.
Í þessari útgáfu eru á annað hundrað nýjar litmyndir, auk umfjöllunar um 2 nýjar ættir, 28 nýjar ættkvíslir og meira en 100 nýjar tegundir.
Reviews
There are no reviews yet.