Description
Annað bindið í ritröðinni Seiður lands og sagna eftir Gísla Sigurðsson, fyrrum ritstjóra Lesbókar Morgunblaðsins. Hér er farið yfir magnaða söguslóð austan úr Fljótshlíð og vestur í Biskupstungur. Jafnframt er fjallað um sérstæða náttúru á þessu svæði þar sem Hekla er í öndvegi og stórárnar Þjórsá og Hvítá. Brugðið er ljósi á nútíma stórbúskap í Skarði á Landi og Bræðratungu, svo og breytta búskaparhætti í öllum uppsveitum Suðurlands. Hér fléttast saman Njáluslóðir, yfirráðasvæði Oddaverja og Haukdæla og margþætt saga Skálholts. Við kynnumst afburðafólki frá liðnum öldum, allt frá Gunnari á Hlíðarenda til Klængs biskups í Skálholti, Gissurar jarls og Vísa-Gísla. Glæsilegt yfirlitrit yfir náttúru og sögu Suðurlands. Í ritinu eru um 400 ljósmyndir, teikningar og kort.
Reviews
There are no reviews yet.